Myndaleikur TM móts í Eyjum

23.05.2017

Leikurinn felur í sér að hvert lið sendir inn skemmtilega mynd af hópnum. Þessi keppni á að efla liðsandann og hrista alla saman fyrir mótið. Við mælum með því að gera mikið úr þessum leik á æfingu og leyfa stelpunum að koma með hugmyndir að því hvernig myndin á að líta út.

 

Nánari upplýsingar;

1. Hvert lið má senda eina mynd.

2. Mynd má senda á postur@tm.is

3. Skilafrestur mynda fyrir TM mótið er til 8. júní.

4. Myndirnar birtast á vef TM og á facebooksíðu TM.

5. Við val á bestu myndinni er farið eftir því hversu mikið hefur verið lagt í útfærslu, frumleika myndarinnar, einnig skipta „like“ á facebook máli en eru ekki algild. Dómnefnd mun því vinna krefjandi en skemmtilegt verk.

6. Tilkynnt verður um verðlaunamyndina 14. júní á facebooksíðu TM og verðlaun veitt á mótinu.

 

Verðlaunin eru út að borða og í bíó fyrir alla liðsmenn og þjálfara.

Við minnum einnig á #tmmotid fyrir þá sem verða duglegir að taka myndir á símann á mótinu.

 

Gangi ykkur vel!