Undanúrslit og leikir um sæti að hefjast

14.06.2008
Núna klukkan 8 hófust undanúrslitaleikir og leikir um sæti. Gott veður er hérna í eyjum þó að sólin feli sig ennþá á bakvið nokkur ský og smá vindur heldur keppendum á tánum.
Svo klukkan 10 hefst úrslitaleikur C-liða, 10:40 er úrslitaleikur B-liða og loks spila A-lið til úrslita klukkan 11:20. Allir þessir leikir eru leiknir á Hásteinsvelli, aðalvelli ÍBV sem lítur stórglæsilega út.

Klukkan 12 í hádeginu er svo matur, verðlaunaafhending og mótslit í höllinni.