Stjarnan TM-Mótsmeistarar 2015

sigruðu Fylki 4-1 í úrslitaleik.

13.06.2015

Rétt í þessu lauk TM-Mótinu í Eyjum með úrslitaleik Stjörnunnar og Fylkis, leikurinn fór fram í sól og blíðu fyrir framan fjölmenni á Hásteinsvelli. Leikurinn fór 4-1 fyrir Stjörnunni, það voru þær Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (2), Jana Sól Valdimarsdóttir (1) og Hrefna Steinunn Aradóttir (1) sem gerðu mörkin fyrir Stjörnuna, en Ellen Sól Kristjánsdóttir gerði mark Fylkis.