Anna Kolbrún Ólafsdóttir valinn efnilegasti leikmaður TM-mótsins

15.06.2015

Anna Kolbrún Ólafsdóttir leikmaður Fylkis-1 var valinn efnilegasti leikmaður TM-mótsins í Eyjum árið 2015.

Hún þótti best að mati þjálfara liðanna en á hverju móti fer fram kosning en Anna fékk flest atkvæðin.

Anna Kolbrún var í pressuliðinu í landsleiknum á föstudagskvöldinu og stóð sig vel þar líka.

Við óskum Önnu Kolbrúnu til hamingju með titilinn.