Viðbeinsbrotnaði á mótinu og fékk glaðning frá ÍBV

15.06.2015

Tinna leikmaður frá Þór Akureyri viðbeinsbrotnaði illa á TM mótinu sem fram fór um helgina í Vestmannaeyjum.

Meistaraflokksleikmennirnir Sigríður Lára Garðarsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir heimsóttu Tinnu og gáfu henni smá glaðning.

Við óskum Tinnu góðs bata og vonandi sjáum við hana að ári liðnu.