Myndaleikur TM mótsins

23.05.2016

Myndaleikur TM mótsins í Eyjum.

Leikurinn felur í sér að hvert lið sendir inn skemmtilega mynd af hópnum. Þessi keppni á að efla liðsandann og hrista alla saman fyrir mótið. Endilega leyfið stelpunum að koma með hugmyndir að því hvernig myndin á að líta út.
Nánari upplýsingar;
1. Hvert lið má senda eina mynd.
2. Mynd má senda á postur@tm.is
4. Skilafrestur mynda fyrir TM mótið er til 3. júní.
5. Myndirnar birtast á heimasíðu TM.is og á facebooksíðu TM.
7. Við val á bestu myndinni er farið eftir því hversu mikið hefur verið lagt í útfærslu, frumleika myndarinnar, einnig skipta „like“ á facebook máli.
8. Tilkynnt verður um verðlaunamyndina 9. júní á kvöldvökunni á TM mótinu

Verðlaunin eru út að borða og í bíó fyrir alla liðsmenn og þjálfara.