Valur vann TM móts bikarinn 2016

11.06.2016

Valur sigraði Stjörnuna í úrslitaleiknum um TM móts bikarinn. Það er óhætt að segja að liðin hafi verið gríðarlega jöfn, staðan var 0-0 eftir venjulegan leiktíma, enn var jafnt 0-0 eftir framlengingu og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni þar sem að Valur bar sigur úr bítum. Við óskum Val til hamingju með sigurinn og báðum liðum til hamingju með frábæran leik.

Aðra sigurvegara og önnur úrslit má sjá undir úrslit og riðlar, jafningjaleikir. Við viljum þakka öllum þátttakendum fyrir komun og að gera mótið svona skemmtilegt, og óskum þeim góðrar og öruggrar heimferðar vonandi með góðar minningar í farteskinu.