Upplýsingar um hæfileikakeppni TM mótsins í Eyjum

07.06.2017

Eins og undanfarin ár verður haldin hæfileikakeppni á TM mótinu í Eyjum. 

Það sem þarf að hafa í huga fyrir forráðamenn og/eða þjálfara liðanna:

  • Hvert atriði má vera 90 sekúndur.
  • Atriðið má vera allskonar söngur, dans, leikrit eða bara hvað sem ykkur dettur í hug.
  • Ef liðið ykkar vill hafa undirspil undir atriðinu sínu þá verður að senda undirspilið á vilmarbjarna1@gmail.com áður en komið er til Eyja en sum lið klikkuðu á því í fyrra og komu með undirspilið á sjálfa hæfileikakeppnina, það á ekki að gera.
  • Undirspilið sem þið sendið má ekki vera youtube linkur heldur mp3 file.

Ef það vakna spurningar endilega hafið samband á arnar@ibv.is