Virðum umferðarreglur

13.06.2019

Lögreglan hafði samband við okkur og bað okkur um að ítreka það að það gilda sömu umferðarreglur hér og annarsstaðar á landinu. Td. bannað að leggja við gular línur. Ef fólk sér sér ekki fært um að fara eftir þessu að þá er líklegt að verðlaunin verði sekt. Við minnum á að við íþróttamiðstöðina (sundlaugina) sem er steinsnar frá íþróttasvæðinu að þar er töluvert af stæðum, mun meira en við Týsheimilið. Allir saman nú, gerum þetta eins vel og við getum og komumst sekta og slysalaust frá mótinu.