Breytingar á Hæfileikakeppni

01.06.2021

Sökum fjöldatakmarkana þá verður hæfileikakeppnin með breyttu sniði í ár. Félögin senda inn myndband sem við munum sýna á ÍBV TV og verða veitt verðlaun fyrir flottasta og skemmtilegasta myndbandið á meðan mótinu stendur.

Það er engin skylda að taka þátt en við vitum að það eru margar byrjaðar að æfa atriði og viljum við gefa þeim kost á að senda það inn til okkar og fá þá tækifæri til að sýna öðrum afraksturinn.

Nú er um að gera að nýta hugmyndaflugið og gera jafnvel eitthvað sem hefði ekki verið hægt að framkvæma í venjulegri keppni.

  • Hámarkslengd á myndbandi er 90 sek.
  • Þemað er: "Stuðningsmaður/stuðningsmenn"
  • Myndabandið þarf að vera í mp4 formi

Myndbandið á að senda á arnar@ibv.is í síðasta lagi mánudaginn 7. júní.