Tjaldsvæði Vestmannaeyja
Staðsett í Herjólfsdal og við Þórsheimili
Verðskrá 2024
2.300 kr. nóttin á einstakling, gistináttaskattur innifalinn
Frítt fyrir 13 ára og yngri
1.300 kr. rafmagn á sólarhring
1.000 kr. þvottavél
1.000 kr. þurrkari
Opnunartími
1. maí - 30. september tjaldsvæði í Herjólfsdal
1. júní - 31. ágúst tjaldsvæði við Þórsheimili
EKKI ER TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
Herjólfsdalur
Þjónusta innifalin:
Heitt og kalt vatn
Salerni
Sturtuaðstaða
Þvottaaðstaða, úti og inni
Eldunaraðstaða með borðkrók
Hjólastólaaðgengi
Losun skolptanka
Önnur þjónusta, gegn gjaldi:
Rafmagn
Þvottavél og þurrkari
Þórsheimili
Þjónusta innifalin:
Heitt og kalt vatn
Salerni
Sturtuaðstaða
Þvottaaðstaða, úti og inni
Eldunaraðstaða með borðkrók
Losun skolptanka
Önnur þjónusta, gegn gjaldi:
Rafmagn
Þvottavél og þurrkari
Farangursgeymsla
Umhverfi
Leiksvæði
Einstakar gönguleiðir
Sundlaug með frábæru útisvæði
Golfvöllur, einn sá fallegasti á Íslandi
Fjölbreytt úrval af veitingastöðum og verslunum í göngufæri
Í Herjólfsdal er þjónustuskáli með salernum, sturtum og eldunaraðstöðu með borðkrók og þvottaaðstöðu. Einnig er þvotta- og salernisaðstaða fyrir neðan Fjósaklett og þvottaaðstaða úti. Gegn auka gjaldi er aðgengi að rafmagni, þvottavél og þurrkara. Þá eru einnig leiksvæði fyrir börn á svæðinu.
Í Þórsheimili eru salerni, sturtur, eldunaraðstaða ásamt borðkrók og þvottaaðstaða sem gestir hafa aðgengi að. Einnig er þvottaaðstaða úti. Á stórum helgum bætast við ferðasalerni á neðra svæði. Gegn auka gjaldi er aðgengi að rafmagni, þvottavél, þurrkara ásamt geymslu á farangri.
Rétt er að geta þess að takmarkað magn er af rafmagni og plássi á stóru viðburðum sumarsins. Því hvetjum við gesti til að mæta tímanlega. Óheimilt er að nýta rafmagn til að hlaða bíla.
Hundar eru velkomnir, en lausaganga bönnuð.
Reglur tjaldsvæðisins
- Tjaldsvæðið er fjölskyldusvæði og yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd forráðamanns.
- Við komu á að greiða dvalargjöld, tjaldvörður er við milli 9:00-14:00 og tengt Herjólfsferðum eftir það.
- Umferð ökutækja á tjaldsvæðinu er takmörkuð, einungis er í boði að aka inn á svæðið til að koma búnaði fyrir og við brottför. Þar fyrir utan á að leggja bílum á bílastæðum. Bílastæði eru við Þórsheimili og inní botni Herjólfsdals.
- Virða ber næturkyrrð á milli kl. 24:00-8:00.
- Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum um flokkun sorps. Flokkunartunnur eru staðsettar við þjónustuhús.
- Gangið vel um svæðið og sýnum hvert öðru tillitssemi.
Við óskum þér/ykkur ánægjulegrar dvalar
Með virðingu og vinsemd
Alli, Kata, Evelyn og Helgi
Sími: 860-9073
Netfang: camping@ve73.is