Skráning komin á fullt

26.04.2005
Félögin eru í óðaönn að skrá sig til leiks.
Mótið í ár er með mjög breyttu sniði og er einungis ætlað fyrir 5.flokk kvenna.
Dagskráin er enn í mótun en eitt af því sem verður nú á dagskrá er leikur á milli Landsliðs Pæjumótsins og pressuliðs. Liðin keppa í sérmerktum búningum sem eru búnir til fyrir þennan leik. Hver leikmaður sem tekur þátt í þessum úrvalsleik fær að eiga sinn búning að leik loknum til minningar um þátttöku sína í leiknum.