Hildur Vala mætir á svæðið

20.05.2005

Nú er ljóst að Idolstjarnan Hildur Vala mun koma og skemmta stelpunum á Pæjumóti ÍBV í ár. Hildur Vala Einarsdóttir, 23 ára reykvíkingur, var í mars valin Idol stjarna Íslands. Hún hefur sannarlega unnið hug og hjörtu landsmanna. Líf er ennþá vinsælasta lag landsins að samkvæmt mælingum tónlist.is er hefur verið það látlaust frá því að lagið kom út í lok mars. Hún tók tímabundið við stöðu Ragnhildar Gísladóttur í hljómsveit allra landsmanna, Stuðmönnum.