ÆDOL-keppni Vöruvalsmótsins

26.05.2005

Í fyrra var í fyrsta sinn haldin ÆDOL-keppi á Vöruvalsmótinu. Heppnaðist keppnin vel og skemmtu stelpurnar sér konunglega á kvöldvökunni og glöddu áheyrendur með ljúfum tónum. Að sjálfsögðu á að endurtaka leikinn og því þurfa liðin að huga að hvaða keppendur þeir ætla að senda til leiks. Hvert félag sendir einn þátttakanda til leiks og hver keppandi syngur eitt lag. Viðkomandi þarf að koma með lagið á disk sjálfur, en bæði er hægt að koma með geisladiska og DVD diska. Í fyrra var sjónvarp á sviðinu þannig að keppendur gátu séð texta lagsins ef þeir höfðu þar til gerða diska og verður sami háttur hafður á nú í ár.

Nú þýðir ekkert annað en að hefja söngæfingar og stefna á sigur !