Innanhúsmót

26.05.2005

Í ár verður haldið hraðmót innanhús samhliða leikjunum utanhús. Öll lið spila leiki innanhús og því þurfa allir keppendur að koma með innanhússkó með sér til Eyja. Mót sem þetta er skemmtileg tilbreyting á mótinu og hefur vakið mikla lukku á Shellmóti þar sem svona mót hefur verið haldið í fjölda ára.

Ef einhverjar spurningar eru varðandi mótið þá er um að gera að hafa samband í síma 481-2060 eða senda tölvupóst á kiddi@ibv.is