PIX-myndir taka myndir af keppendum á Vöruvalsmóti 2005

07.06.2005

Á Vöruvalsmótinu í ár munu PIX-myndir bjóða þátttakendum myndir af sér til kaups. Starfsfólk PIX mun skipuleggja tímapantanir í myndatökur í samráði við forráðamenn liðanna en þær fara fram fyrir eða eftir leik. Liðið ásamt þjálfara, liðsstjóra og öðrum sem eiga að vera á myndinni, þurfa að mæta 10 mínútum fyrir áður ákveðinn myndatökutíma.

PIX býður upp á eina stóra mynd af liðinu með innfelldri mynd af hverjum og einum og eru myndirnar tilbúnar til afhendingar 2-3 vikum eftir mótið.

Við hjá Vöruvalsmótsnefnd hvetjum liðin til að nýta sér þessa þjónustu því myndirnar eru góð minning sem gaman er að eiga um ókomin ár.

Sýnishorn: