Leikjum lokið í dag - ÆDOL-keppni í kvöld

10.06.2005

Þá hafa allir leikir föstudags verið spilaðir og úrslit og staða komin inn á heimasíðuna. Spennan í mótinu er mikil og verður gaman að fylgjast með hvernig þetta fer allt saman á morgun. Nú er kvöldvakan framundan þar sem stelpurnar keppa í ÆDOL-keppni Vöruvalsmótsins og hlusta auk þess á Idol stjörnuna sjálfa, Hildi Völu, taka nokkur lög.