Vöruvalsmótið árið 2005 hafið !

10.06.2005

Vöruvalsmótið árið 2005 er hafið. Mótið hófst stundvíslega klukkan 8:20 í morgun með leikjum á Týsvelli. Liðin hafa svo leikið hvern leikinn á fætur öðrum og hefur leikgleðin og baráttan verið áberandi

Þá var fyrsta innanhúsmótið háð í morgun þegar keppni í B-liðum fór fram. Mótið fer þannig fram að leikið er í 1 x 6 mínútur í tveimur riðlum. Svo fara fram undanúrslit og svo eru spilaðir leikir um 1. og 3.sæti. FH unnu fyrsta titil mótsins þegar þeir sigruðu í keppni B-liða innanhúss og óskum við þeim innilega til hamingju með það. Nú seinni partinn fer svo fram keppni C-liða innanhúss og má búast við spennandi keppni þar.

Nú fljótlega er von á fyrstu myndum frá mótinu í hús en forráðamenn og foreldrar stúlknanna geta komið með minniskort úr myndavélum sínum upp í Týsheimili og látið færa þær yfir á vefinn.