FH-stúlka sigraði ÆDOL keppni Vöruvalsmótsins 2005

12.06.2005

Það var FH stúlkan Una Margrét Árnadóttir sem sigraði í ÆDOL-keppni Vöruvalsmótsins árið 2005. Hún söng lagið "Ekkert breytir því" sem Sálin hans Jóns míns gerði vinsælt og heillaði dómnefndina upp úr skónum með fallegum söng sínum.

Dómnefndina skipuðu Idol-stjörnurnar Hildur Vala, Rakel og Vala og voru þær mjög ánægðar með söng stúlknanna. Mörg liðin höfðu undirbúið glæsileg atriði með dönsum og bakröddum og greinilegt að liðin höfðu undirbúið sig vel fyrir keppnina. Hægt er að skoða myndbönd af söng stúlknanna inni á HalliTV en þar er einnig viðtal við Unu Margréti ÆDOL-stjörnu Vöruvalsmótsins 2005.