Fleiri myndir komnar

09.06.2006

Fleiri myndir hafa bæst við og er það myndir frá Fram. Hægt er að skoða myndirnar með því að fara í myndir og velja svo félagið. Einnig er hægt að sjá myndirnar frá Fram með því að smella hérna.

Mótið hefur gengið mjög vel í dag og fer að líða að lokum þessa dags í knattspyrnunni en í kvöld er kvöldvakan í Íþróttahúsinu þar sem Ædol keppnin fer fram. Ingó Idolstjarna verður á staðnum og er yfirmaður dómnefndar og mun örugglega taka lagið fyrir keppendur.