Landslið 2 - 0 Pressulið

10.06.2006

Leik Landsliðs og Pressuliðs var rétt í þessu að ljúka með sigri Landsliðs, með tveimur mörkum gegn engu. Markaskorarar Landsliðsins voru Guðmunda Brynja Ólafsdóttir úr Selfossliðinu og Natalía Reynisdóttir úr HK. Markmaður Fram, Eydís Blöndal sá um að halda Pressuliðinu frá því að skora í dag. Allar stelpurnar stóðu sig með prýði, lögðu allt sitt í leikinn og voru liðum sínum til sóma.

Núna er verið að grilla pylsur fyrir alla þátttakendur og svo fljótlega hefst sundlaugadiskóið