Myndbönd komin inn á HalliTV

11.06.2006

Á kvöldvökunni á föstudagskvöldið var Halli TV að sjálfsögðu á staðnum en það er vefsjónvarp ÍBV. Tekin voru viðtöl við nokkra keppendur auk þess sem Ingó úr Idolinu var tekinn tali. Einnig eru myndbönd frá Ædolkeppni Vöruvalsmótsins komin inn en þar voru margar ungar stúlkur sem létu ljós sitt skína með glæsilegum söng og skemmtilegum dansatriðum.

Við viljum hvetja ykkur til að smella á merki Halli TV hér til vinstri á síðunni og þá getið þið skoðað öll þessi myndbönd. Einnig geturu smellt hérna til að skoða myndböndin.