Myndir, úrslit og Vöruvalsmótsfréttir

11.06.2006

Núna eru úrslitaleikirnir í fullum gangi og er spilað á Hásteinsvellinum, einum fallegasta velli Íslands og þrátt fyrir smá rigningu gengur allt mjög vel.

Margar myndir eru komnar inn á síðuna en þær eru orðnar yfir 1100 talsins. Hægt er að skoða myndir frá sínu félagi með því að velja myndir og svo sitt félag.

Halli Tíví hefur öll atriðin úr Ædol keppninni sem haldin var á föstudagskvöldið ásamt nokkrum viðtölum.

Vöruvalsmótsfréttir blað 2 er komið á netið og er hægt að skoða það undir ný skjöl hérna til hægri.

Úrslitin eru líka uppfærð reglulega og því um að gera að fylgjast með síðunni og sjá hvernig liðinu þínu gengur.