Vöruvalsmótinu 2006 lokið

12.06.2006

Þá er vel heppnuðu Vöruvalsmóti lokið. Mótinu lauk með glæsilegu lokahófi þar sem afhent voru verðlaun fyrir góðan árangur á mótinu. Keppendur héldu að því loknu heim til sín, þreyttir eftir viðburðaríka helgi. Vöruvalsmótsnefnd ÍBV vill þakka öllum þátttakendum kærlega fyrir skemmtilega helgi og vonast til að sjá sem flesta að ári liðnu.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir verðlaunahafa á mótinu :

Innanhúsmót A-liða :

1. sæti : FH 2.sæti : Selfoss

Innanhúsmót B-liða :

1. sæti : FH 2.sæti : Þróttur N

Innanhúsmót C-liða :

1. sæti : Breiðablik 2.sæti : ÍA

Útimót A-liða :

1. sæti FH 2.sæti Selfoss 3.sæti ÍBV´

Útimót B-liða :

1.sæti ÍBV 2.sæti Afturelding 3.sæti Breiðablik

Útimót C-liða :

1.sæti Breiðablik 2.sæti Þróttur N 3.sæti KFR

Prúðasta liðið : Þróttur N

Lárusarbikarinn : Guðmunda Brynja Óladóttir Selfossi