Staðfestur skráningalisti

05.06.2007

Nú hefur endanlegur skráningalisti verið staðfestur af Pæjumótsnefnd. Níu félög eru skráð til leiks en ásamt heimaliðinu ÍBV verða Afturelding, Selfoss, Þróttur Nes, Fjölnir, FH, Haukar, Breiðablik og HK sem keppa. Heildarfjöldi þátttakenda verður svipaður og á síðasta ári eða um 280 keppendur með fararstjórum og þjálfurum. Fjöldi liða er einnig sá sami og í fyrra eða 28 lið og skiptast þau í 9 A-lið, 10 B-lið og 9 C-lið.

Undirbúningur fyrir mótið er á fullu og mikill spenningur hér í Eyjum að fá að taka á móti þessum fríða hópi þátttakenda. Í samtali við þjálfara liðanna er einnig greinilegt að stelpurnar eru mjög spenntar að koma til Eyja og er von á hörkugóðu Pæjumóti í ár.