Ædol keppnin komin á hreint - Jógvan dómari

07.06.2007
Nú er skemmtidagskrá Pæjumótsins öll að verða ljós. Stærsti viðburður mótsins verður án efa Ædol keppnin þar sem enginn annar en X-Factor stjarna Íslands, Jógvan Hansen, mun mæta á svæðið og verða yfirdómari. Ljóst er að hérna er um að ræða stórviðburð í Vestmannaeysku skemmtanalífi og að sjálfsögðu gerist það á vegum ÍBV-Íþróttafélags.

Jógvan sagði í samtali við Pæjumótsfréttir, að hann hlakkaði mjög til að koma til Vestmannaeyja og fá að dæma hjá þessum framtíðar söng- og knattspyrnukonum Íslands.

Við í Pæjumótsnefnd bjóðum Jógvan hjartanlega velkominn á Pæjumótið og vonum að hann eigi eftir að eiga ánægjulega dvöl hér og að Ædol keppnin verði sem glæsilegust í ár.