Mjög góð þátttaka

14.04.2008

Nú er skráning komin á fullt fyrir mótið í sumar. Mörg ný félög hafa skráð sig til leiks og eru félögin orðin töluvert fleiri en á síðasta móti en hægt er að sjá hvaða lið hafa skráð sig til leiks á Félög hér til hliðar. Von er á nýjum samstarfsaðila við mótið og verður hann kynntur til sögunar á næstu dögum.
Við hvetjum félög sem hafa skráð sig að senda tölvupóst með upplýsingar um tengiliði á netfangið paejumot@ibv.is sem allra fyrst.