Stutt í mót

04.06.2008

Sæl öll!

Nú ætla ég að biðja öll félög um að senda mér lokatölur um hópana ykkar, þ.e. iðkendafjölda annars vegar og svo fjölda yfir fararstjóra og þjálfar hins vegar. Einnig þarf ég að vita hvenær/hvernig þið komið á eyjuna og farið til baka.

Varðandi Ædol-keppnina (sem er í raun líka hæfileikakeppni) þá er nauðsynlegt að hvert atriði sé ekki lengra en tvær og hálf mínúta.

Við viljum endilega biðja hvert félag um að taka með sér félagsfána og það væri janfvel gott að fá tvo ef hægt væri.

Ef félögin eiga félagslag þá væri mjög gott að fá svoleiðis líka.