Sjoppa á mótinu

10.06.2008
Sjoppa pæjumótsins verður í Týsheimilinu og verður opið mótsdagana frá kl. 8-17. Hægt er að fá sér kaffi, heitt súkkulaði, vöfflur, heitar samlokur, gos, nammi og fleira. Einnig verða til sölu regnslár, svona bara til vonar og vara ef svo ólíklega vill til að rigni í Eyjum!

Látið endilega sjá ykkur!

4 flokkur kvenna ÍBV í knattspyrnu.