ÍR innanhúsmeistari B-liða

13.06.2008
ÍR varð í morgun innanhúsmeistari B-liða eftir góðan sigur á Fjölni í úrslitaleik. ÍR stúlkurnar börðust eins og ljón allan tímann og áttu sigurinn fyllilega skilið. Mótið var jafnt og spennandi og m.a. réðust úrslit í undanúrslitaleik ÍR og FH2 ekki fyrr en eftir hlutkesti.

Öllum innanhúsmótunum er því lokið. Breiðablik sigraði í keppni A-liða, ÍR í keppni B-liða og ÍBV í keppni C-liða.