Pæjumót TM 2009

26.03.2009
Komudagur er miðvikudagur 10. júní og brottför laugardagur 13.júní, byrjað að spila að morgni fimmtud.11. júní.

Drög að dagskrá:

Fimmtudagur 11.júní: Morgunmatur, leikir fram eftir degi, matur seinnipart og setning/kvöldvaka (hæfileikakeppni  þáttakenda) um kvöldið.

Föstudagur 12. Júní: Morgunmatur, leikir, hádegismatur, Landsliðs- og Pressuleikur, grill seinnipartinn og sundlaugardiskó um kvöldið.

Laugardagur 13. Júní: Morgunmatur, leikir fram að hádegi, hádegismatur og lokahóf. Brottför í Herjólf/Flug.

Verð um kr.9.000 á mann og kr.10.000 staðfestingargjald fyrir hvert lið, óafturkræft.  Frítt fyrir einn þjálfara/fararstjóra með hverju félagi.

Innifalið í mótsgjaldi er í raun allt eftir að stigið er á land í Eyjum.  Rúta við komu og brottför, 3 morgunverðir, 2 hádegisverðir, 1 kvöldmatur, 1 grillveisla, bátsferð, kvöldvaka, sund og sundlaugardiskó og gjafir.

Svo er frítt fyrir þáttakendur í Náttúrugripasafn Vestm.

Frítt er í Herjólf fyrir 11 ára og yngri, 12-15 ára greiða eina einingu, kr.490 ef keypt er afsláttarkort.  Athugið að þáttakendur sjá um að panta í Herjólf.