Pæjumót rúllar af stað.

11.06.2009
Pæjumót TM og ÍBV í Eyjum er farið af stað. Þáttaka á mótinu er betri í ár en hún var í fyrra sem er einungis jákvætt. Á þessari síðu getur fólk sem hefur áhuga á að fylgjast með gangi mála á mótinu lesið sig til um allt sem fer fram. Hér verða öll úrslit gerð kunn og ýmislegt skemmtilegt lítur einnig dagsins ljós.
Pæjumótið hefur verið haldið óslitið síðan 1990 og hefur ávallt vakið mikla lukku. Í ár eru 14 lið sem munu etja kappi en þau eru Breiðablik, FH, Fjölnir, Valur, Skallagrímur, Selfoss, Snæfellsnes, Þóttur, Stjarnan, HK, KR, ÍR, Grindavík og að sjálfsögðu gestgjafarnir í ÍBV.
 
Pæjumótsnefnd vill bjóða alla keppendur, þjálfara, fararstjóra og aðstandendur velkomna á 19. Pæjumótið og vonar að við getum unnið í sameiningu að frábæru móti.