Vals-Pæjur komu, sáu og sigruðu

12.06.2009
Valur vann hæfileikakeppnina!
Eftir að keppni lauk í gær fóru stelpurnar upp í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þar sem fram fór hæfileikakeppni og kvöldvaka.
Seinustu ár hefur alltaf verið gríðarleg stemmning á kvöldvökunni og í ár varð engin breyting á.
 
Öll liðin komu með atriði og verður að segjast að atriðin í ár eru með þeim glæsilegari sem hafa sést.
 
Eftir að dómnefnd hafði lokið störfum greindi hún frá því að það voru Vals-Pæjurnar sem höfðu unnið. Mikill fögnuðu braust út meðal áhorfenda enda áttu Pæjurnar frá Val sigurinn skilið.
 
Það voru þær Helena og Málfríður sem fluttu lagið Maístjörnuna með kór og dönsurum.