Búið að ákveða þátttökugjald á pæjumót TM

05.01.2010
Þá er búið að taka ákvörðun um þátttökugjald á pæjumót TM 2010. Það mun vera 10.500,- á mann. Breytingin frá því í fyrra er að bætt verður við máltíð á hvern þátttakanda. Staðfestingargjaldið verður það sama. Þ.e 10.000,- á lið og þarf að vera búið að greiða það fyrir 15. apríl n.k. Mótið sjálft verður 10-13. júní. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á Einar Friðþjófsson. Netfangið er einarf@ismennt.is.