Búið að skrifa undir við TM

16.03.2010
Þá hefur verið undirritaður samningur milli ÍBV-íþróttafélags og Tryggingamiðstöðvarinnar um pæjumót TM 2010. ÍBV vill lýsa yfir ánægju með að ná áframhaldandi samningum við Tryggingamiðstöðina um pæjumótið. Óhætt er að segja að Pæjumótið stækki nú frá ári til árs. Nú eru komin tæplega 50 lið og enn er tími til að skrá sig.
Tímamörkin eru 15 apríl og er hægt að skrá sig hjá framkvæmdastjóra mótsins, Einari Friðþjófsyni í síma 860-2207. Myndin er tekin í höfuðstöðvum TM við undirritun samningsins.