Allt á áætlun hjá ÍBV í sumar

22.05.2010
Nú er farið að styttast í Pæjumót TM og Shellmótið hjá ÍBV og undirbúningur mótsnefndana að ná hámarki. Grasvellirnir í Eyjum hafa aldrei litið betur út og virkaði askan sem kom til okkar um síðustu helgi sem góður áburður á vellina. Pæjumótið verður sett þann 10. júní og Shellmótið verður sett hálfum mánuði síðar eða þann 24. júní.
ÍBV hlakkar til að fá alla þá gesti til sín nú í sumar og mun halda áfram að veita sem besta þjónustu hér eftir eins og hingað til.   
 
Þessar myndir voru teknar í blíðuni í gær, föstudag.