Pæjumót TM og ÍBV árið 2010 er hafið

10.06.2010
Í morgun kl 8:20 var flautað til leiks á Pæjumótinu. Sólin er eitthvað að láta bíða eftir sér og er búið að vera smá úði yfir þáttakendur. Stelpurnar láta það samt ekkert á sig fá og skín leikgleðin af andlitum stúlknanna. Í kvöld er setningarathöfn mótsins en þar mætir Jónsi úr Svörtum fötum og mun dæma í hæfileikakeppninni.