Myndir frá gærdeginum komnar á netið

12.06.2010
Við vorum að fá í hús myndir frá gærdeginum. Frábært veður var í Vestmannaeyjum i gærdag, sól og smá gola. Það var einnig mikið um að vera hjá stelpunum í gær. Fótbolti, landsleikur, grillveisla og diskósund var meðal annars sem var boðið uppá í gærdag. En við hvetjum fólk að kíkja á myndirnar hérna hjá okkur. Myndir 1 og myndir 2.
 
Ef þú átt myndir af Pæjumótinu í ár máttu koma með þær í Týsheimilið þar sem Smári og félagar eru og við komum myndunum á síðuna okkar.