Úrslit Pæjumótsins 2010

12.06.2010
Pæjumót TM lauk í dag um hádegisbil. Í morgun hafa stelpurnar verið að spila um sæti bæði á Hásteinsvellinum og Týsvellinum. Smá rigning stoppaði stelpurnar ekki í að spila flottan fótbolta og voru margir leikjanna mjög spennandi. Það var kvendómarinn Guðrún Fema sem dæmdi nokkra úrslitaleikina en hún er ein af fáum kvendómurunum á Íslandi. Myndir frá leikjunum í morgun má sjá hér. En hér að neðan má sjá úrslit í A, B, C og D liðum. Núna stendur yfir verðlaunaafhending í Íþróttahúsinu áður en pæjunar halda heim í dag.
 
1. Breiðablik
2. FH
3. Fjölnir
 
 
1. Breiðablik
2. Valur
3. Fylkir
 
1. Breiðablik
2. Fylkir
3. Valur
 
1. Valur
2. Fylkir
3. Breiðablik
 
Efnilegasta pæjan var valin Selma Sól Magnúsdóttir Breiðabliki
 
 
(Ef þú smellir á x-lið sérðu öll úrslit)