Leikjaplan, riðlaskipting op gisting

06.06.2011
Hér er leikjaplanið fyrir TM-pæjumótið 2011 og riðlaskiptingin og loks gistingin. Ákveðið hefur verið að í stað þess að leika á Helgafellsvelli sem er langt frá aðalsvæðinu þá hefur verið ákveðið að færa þá leiki í Eimskipshöllina, þannig að allir leikir fara fram á sama svæði. Athugið að nýjasta og endanlega leikjaplanið kom inn kl:11:22 miðvikudag, færa varð HK-A liðið úr A-riðli í C-riðil þar sem Grótta datt út í A-liða keppni og var þessi tilfærsla gerð til að jafna leikjafölda. Grótta kemur inn í keppni D-liða í stað ÍBV-4. Hér er síðan hægt að nálgast alla leikina á excel skjali og einnig alla riðlana sér með fyrirvara um innsláttarvillur.