Loftgæði góð, þrátt fyrir svifryk
09.06.2011Aðeins hefur borið á öskumistri í Eyjum þar sem af er degi. Heilbrigðiseftirlitið mælir svifrikið og vildi fulltrúi stofnunarinnar koma eftirfarandi á framfæri:
Þið getið séð niðurstöður mælinga úr stöðvum á heimasíðunum www.heilbrigdiseftirlitid.is og www.ust.is og þar er mælirinn á Raufarfelli í beinni línu frá öskustöðvum. Í morgun sýndi hann 5míkrogr./rúmmeter og nú 10 míkrógr/rúmmeter en loftgæði teljast samt góð. Þið getið beint áhyggjufullum foreldrum að fylgjast með á þessum heimasíðum en mælarnir eru með síritum og mæla á nokkura mín fresti.