Pæjumót TM og ÍBV árið 2011 er hafið

09.06.2011
Einnig spilað inni í Eimskipshöllinni.
Í morgun kl 8:20 var flautað til leiks á Pæjumótinu. Ekki er nú veðrið sem best en stelpurnar láta það ekki stoppa sig við knattspyrnuiðkunina. Nú í ár er líka notast við knattspyrnuhús okkar eyjamanna og eru 2 vellir þar inni. Hægt er að sjá myndir með því að smella á meira.
 
Mótið fer ört vaxandi og eru keppendur nú um 700. Búast má við að mun fleiri foreldra fylgi sýnum börnum nú þegar að bakkafjara er opin.
 
Úrslit verða uppfærð reglulega hérna á síðunni. Í kvöld er setningarathöfn mótsins en þar mætir Magni á svæðið.