Pæjumót TM 2012

24.08.2011
Pæjumót TM 2012 verður sett fimmtudaginn 14. júní og lýkur laugardaginn 16. júní. Hægt er að skrá liðin hjá framkvæmdastjóra mótsins, Einari Friðþjófssyni í síma 860-2207 eða senda tölvupóst á einarf@ismennt.is. Nánari upplýsingar koma er nær dregur móti. Bent skal á að bætt hefur verið við máltíð á miðvikudeginum 13. júní sem innifalin er í mótsgjaldið.