Skráningar ganga vel

23.01.2013
Útlit er fyrir stórt og gott TM pæjumót í sumar, nú þegar hafa um 20 félög tilkynnt þátttöku og allt útlit fyrir að þau geti orðið um 25. Höttur frá Egilsstöðum ætlar að koma í fyrsta skipti á pæjumót og hlökkum við til að fá þau í heimsókn í sumar.