Stefnir í stórt og gott TM mót 2013

09.02.2013
Skráningar í TM mótið fyrir 2013 sem fram fer 13. - 15. júní ganga mjög vel, nú þegar hafa 22 félög tilkynnt þátttöku og er það töluverð fjölgun frá í fyrra. Enn er þó hægt að bæta við félögum og er áhugasömum bent á að hafa samband við mótsstjórann Einar Fidda á einarf@ismennt.is félögin sem þegar hafa tilkynnt um þátttöku eru: Afturelding, Breiðablik, FH, Fjölnir, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, HK, KR, Snæfellsnes, Selfoss, Valur, Víkingur, Skallagrímur, ÍBV, ÍA, Stjarnan, ÍR/Leiknir, Höttur, Þór Ak og Þróttur R.