TM myndakeppni milli liða á TM-Mótinu 2013

28.05.2013
Nú styttist í Pæjumót TM og til að hvetja ykkur stelpurnar áfram og efla liðsheildina viljum við bjóða ykkur að taka þátt í skemmtilegri myndakeppni á milli liða! 
Keppnin felur í sér að hvert lið sendir inn skemmtilega mynd af pæjunum í góðum gír. 
Við mælum með því að liðin bregði út af vananum og geri eitthvað spennandi og óvenjulegt á myndunum til að gera leikinn enn skemmtilegri. Það gæti verið sniðugt að hafa t.d. búningadag á æfingu og taka spennandi myndir, finna skemmtilegar staðsetningar um bæinn til að taka myndir af liðinu svo er alltaf gaman að taka myndir af stelpunum að spila á vellinum. 

Nánari upplýsingar; 

1.        Hvert lið má senda eina mynd. 

2.        Liðin sem taka þátt verða að taka þátt í Pæjumóti TM. 

3.        Mynd má senda á postur@tm.is 

4.        Skilafrestur mynda fyrir Eyjamótið er fyrir 11. júní. 

5.        Myndirnar birtast á heimasíðu TM.is – Pæjumót. Facebooksíðu TM og Facebooksíðu fotbolti.net 

6.        Við val á bestu mynd er farið eftir flestum „like“ ásamt því mun dómnefnd vinna krefjandi en skemmtilegt verk. 

7.        Vegleg verðlaun verða afhent á Pæjumótunum fyrir skemmtilegustu myndina. 

Verðlaunin eru út að borða og í bíó fyrir alla liðsmenn og þjálfara. 

Gangi ykkur vel og megi besta liðið vinna. 

Pæjukveðja frá TM