Víkingur Reykjavík í stuði á TM-Pæjumóti í eyjum

15.06.2013
Víkingar sigruðu í keppni A-liða á TM-Pæjumótinu 2013 1-0 gegn Breiðabliki í hörkuleik. Víkingar voru einnig í sigurham í úrslitaleik B-liða þar sigruðu þær lið FH 3-0. Dæmið snérist svo við í leik C-liða þar sigraði FH Víkinga 1-1 (FH skoraði fljótara mark). Í keppni D-liða sigruðu svo Fylkisstelpur pæjurnar frá Selfossi 3-0. Öll úrslit í mótinu má sjá hér til hliðar. 
Við hjá ÍBV viljum þakka öllum þátttakendum fyrir skemmtilegheitin og vonum að allir hafi skemmt sér vel.