Minnum á að taka með félagsfána til Eyja

06.06.2014
 Nú styttist óðum í TM-Pæjumótið í Eyjum og viljum við minna félögin á að taka með sér 2 félagsfána hvert. Einn á spítu og annan til að flagga við Týsvöllinn í Eyjum. Þið flaggið sjálf þegar þið komið í bæinn veljið álitlega stöng og upp með fánann. Fáninn á spítunni er síðan fyrir setninguna.