TM-Mótið 2015, skráning í fullum gangi

28.01.2015
 TM-Mótið fer fram dagana 10. - 13. júní í ár (10. júní komudagur) Skráning er nú í fullum gangi og hvetjum við alla sem vilja vera með að ganga frá skráningu sem allra fyrst, eigi síðar en 15. febrúar. senda skal skráningu á ibv@ibv.is mótið verður með sama sniði og í fyrra en þá var í fyrsta skipti tekið upp leikjafyrirkomulag það sem notað hefur verið á Shellmótinu í mörg ár, þetta þýðir fleiri leiki fyrir stelpurnar en áður. Við munum á næstunni setja inn fréttir af gangi mála og hér til hliðar má einnig finna ýmsar upplýsingar um mótið svo sem gjöld ofl. Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega sendið okkur þá línu á ibv@ibv.is eða á sigfus@ibv.is