Ferðatilhögun og fleira

23.02.2015
Mótið í ár verður 80 liða mót sem er 8 liðum stærra en í fyrra. Við munum leika eftir fyrirkomulagi Shellmótsins en það er sama fyrirkomulag og við lékum eftir síðasta sumar. Öll þau lið sem hafa skráð sig til keppni komast inn á mótið í sumar.
Nú liggur loks fyrir hvenær liðin ferðast og til að ganga frá pöntun þarf að senda póst á neftangið Rannveig.Isfjord@eimskip.com fyrir 15. mars. Nauðsynlegt er að gefa henni upp aldur stúlknanna, fjölda fullorðinna og stærð bíla sem ferðast með liðinu. Við munum senda á liðin síðar í dag ferðatilhögun með tölvupósti.